Þingkjörin nefnd um erlendar fjárfestingar heimilaði kaup Magma Energy á HS Orku
Þingkjörin nefnd sem úrskurða skyldi hvort kanadíska orkufyrirtækinu Magma Energy væri lagalega heimilt að kaupa HS Orku hefur lagt blessun sína yfir þann gjörning samkvæmt heimildum RÚV en nefndarmenn sjálfir eru þögulir sem gröfin um málið.
Nefndarformaðurinn, Unnur Kristjánsdóttir, veitir engar upplýsingar en bendir á Gylfa Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra sem hyggist kynna niðurstöðuna sjálfur. Hvorki RÚV né Eyjan höfðu náð tali af Gylfa þegar þetta er skrifað skömmu eftir að fundi nefndarinnar um erlendar fjárfestingar lauk.
Heimildir RÚV segja að nefndin hafi lagt blessun sína yfir kaupin en málið þykir afar fordæmisgefandi um heimildir erlendra fyrirtækja utan Evrópu til kaupa á íslenskum orkufyrirtækjum. Eru lögin afar ströng gagnvart öðrum en þeim innan EES svæðisins en Magma Energy fann glufu á lögunum og stofnaði sérstakt skúffufyrirtæki í Svíþjóð vegna kaupanna á HS Orku.
Segir RÚV að fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Samfylkingar hafi myndað meirihluta í nefndinni um niðurstöðuna.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is