Þriðjudagur 23.03.2010 - 11:55 - Ummæli ()

Fyrrum framkvæmdastjóri Birtíngs: Vill gjarnan kaupa DV en telur verðið fráleitt

dv-forsidur.jpgElín G. Ragnarsdóttir, fyrrum framkvæmdastjóri Birtíngs, fer ekki í felur með þann áhuga sinn að eignast DV en segir við Eyjuna að það verð sem núverandi eigandi, Hreinn Loftsson, gæli við að fá fyrir blaðið sé verulega úr takti við raunveruleikann.

Ætlar Elín því ekki að svo stöddu að gera Hreini tilboð í blaðið en það hefur verið til sölu um nokkurra vikna skeið. Eigandinn sjálfur hefur hundsað allar fyrirspurnir um málið en heimildir herma að Hreinn sætti sig við kauptilboð kringum 40 milljónir króna en upphaflegt verð hans var nær 50 milljónum.

Það verðmat er fráleitt að mati Elínar og telur það skýra hvers vegna enginn kaupandi hafi stokkið til enn sem komið er. „Það má ekki gleyma að sá sem kaupir blaðið þarf að hafa góðan pening í handraðanum þess utan. Ekki aðeins er prentun blaðsins staðgreidd með peningum heldur eru allir starfsmenn DV á fyrirfram greiddum launum og því þarf að byrja á því að punga út dágóðum upphæðum fyrir utan kaupin sjálf.“

Hún segist kitla í puttana að byrja aftur í bransanum og þykir DV afar góður kostur. „Það væri frábært að taka við slíku blaði að mínu viti og það hefur hvarflað að mér að gera eitthvað meira en að hugsa það. En að svo stöddu kemur það ekki til álita.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is