Svifryk yfir heilsuverndarmörkum í Reykjavík í dag. Líklega einnig á morgun
Búist er við að styrkur svifryks í Reykjavík verði yfir heilsuverndarmörkum í dag og á morgun.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar.
Fram kemur að hvössum vindi er spáð í Reykjavík í dag, en engri úrkomu. Þess vegna er talið líklegt að svifryksgildi muni fara hækkandi í dag – og farið verði yfir heilsuverndarmörkin í 12 sinn á þessu ári, segir Anna Rósa Böðvarsdóttir heilbrigðisfulltrúi og að jafnframt séu líkur á að svifryksgildi verði há á morgun, 24. mars, þar sem spáin er svipuð. Svifrykið berst meðal annars frá samgöngum í borginni, en ryk hefur safnast upp í vetur, framkvæmdasvæðum og öðrum uppsprettum.
Styrkur svifryks klukkan 10.30 í morgun var 43 míkrógrömm á rúmmetra á mælistöð Umhverfis- og samgöngusviðs við Grensásveg. Ég býst við að mælistöðvarnar við Grensásveg og leikskólann Furuborg munu fara yfir heilsuverndarmörk í dag og á morgun, segir Anna Rósa, en heilsuverndarmörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.
Fram kemur að hutfall negldra dekkja í Reykjavík var talið á miðvikudag í vikunni sem leið. Hlutfallið skiptist þannig að 39% ökutækja voru á negldum dekkjum og 61% var á öðrum dekkjum. Á sama tíma í fyrra var hlutfallið 42% negld á móti 58% ónegldum. Búist er við að styrkur svifryks verði yfir heilsuverndarmörkum í dag og á morgun.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is