Þriðjudagur 23.03.2010 - 11:09
- Ummæli
()
Topparnir hjá Símanum fengu samtals 434 milljónir í launagreiðslur í fyrra
Skipti hf., móðurfélag Símans, greiddi æðstu stjórnendum og stjórnarmönnum samtals 434 milljónir króna í laun á síðasta ári. Sé miðað við samþykkt aðalfundar í fyrra fá stjórnarmenn félagsins 14,4 milljónir í laun fyrir stjórnarsetuna.
Frá þessu er sagt á vef Viðskiptablaðsins.
Fram kemur að rúmlega 419 milljónir skiptast þá á milli forstjórans, Brynjólfs Bjarnasonar, og framkvæmdastjóra. Sex framkvæmdastjórar eru hjá Skiptum en inn í þessari tölu eru einnig greiðslur til framkvæmdastjórar dótturfélaga eins og Símans, Mílu og Skjásins svo einhver félög séu nefnd. Einnig rekur Skipti félög erlendis.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is