Miðvikudagur 24.03.2010 - 11:20 - Ummæli ()

Alþingi: Ráðherrar svara spurningum um ESB og dagskrárgerð hjá Ríkisútvarpinu

altingi.jpgRáðherrar ríkisstjórnir svara á þingfundi í dag nokkrum fyrirspurnum sem beint hefur verið til þeirra á þingskjölum.  Þar á meðal frá Ragnheiði E. Árnadóttur, hvort utanríkisráðherra hyggist láta þýða á íslensku álit framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um aðildarumsókn Íslands að ESB, og frá Birki Jóni Jónssyni,  hvort menntamálaráðherra hyggist beita sér fyrir eflingu innlendrar dagskrár- og kvikmyndagerðar hjá Ríkisútvarpinu.

Samtals eru þrettán fyrirspurnir til umræðu á þingfundinum sem hefst kl. 13.15 með umræðu um störf þingsins.

Í morgun voru fundir í nokkrum þingnefndum, þar á meðal menntamálanefnd sem ræddi fjölmiðlafrumvarpið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is