Miðvikudagur 24.03.2010 - 11:56
- Ummæli
()
Greiningadeild Íslandsbanka: Verðbólga aukist en hefur náð hámarki. Hjöðnun framundan
Greiningardeild Íslandsbanka metur það svo að verðbólga í landinu hafi nú náð hámarki og hjaðni jafnt og þétt héðan í frá. Mælist verðbólgan nú töluvert hærri en í liðnum mánuði og er orsaka að mestu að leita í töluverðum hækkunum eftir að útsölum lauk í verslunum. Á móti kemur að íbúðaverð fer smám saman lækkandi og dregur verðbólguna með sér.
Verðbólgan í landinu á fyrsta ársfjórðungi mælist 7,4 prósent og hefur náð toppnum að mati greiningardeildarinnar. Mun verðbólga hjaðan jafnt og þétt á næstu mánuðum og metur deildin það svo að í árslok geti verðbólgan verið komin niður í 3,5 prósent.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is