Miðvikudagur 24.03.2010 - 15:58 - Ummæli ()

Talsmaður neytenda: Niðurfærsla skulda varla skattskyld samkvæmt núgildandi lögum

peningar1.jpgAð mati Talsmanns neytenda, Gísla Tryggvasonar, er ólíklegt að hægt sé að skattleggja niðurfærslu skulda miðað við núgildandi lög. Er það mat Gísla þvert á mat skattayfirvalda sem telja óumdeilt að skattleggja beri slíkt.

Slíkt mál er nú til skoðunar hjá yfirskattanefnd og verður niðurstaða þess máls fordæmisgefandi. Þá er einnig unnið að breytingum á skattalögum í fjármálaráðuneytinu.

Gísli fjallar um málið á vef Talsmanns neytenda í dag en undanfarið hefur talsvert farið fyrir fréttum af niðurfellingum skulda og skattlagningu í kjölfarið. Er niðurstaða Gísla sú að miðað við lög í landinu sé hæpið að halda því fram að niðurfærsla skulda neytenda sé skattskyld. Þannig skattlagnin bryti í bága við stjórnarskrá þar sem ekki sé um að ræða ívilnum heldur staðfestingu á rétti neytenda.

„[...] ekki sé lagastoð fyrir því að skattleggja niðurfærslu eða „afskriftir“ skulda neytenda sem stjórnvöld og fjármálastofnanir hafa ýmist þegar ákveðið eða áforma.“

Þá bendir Talsmaðurinn á að skattkerfisbreytingar hafi engin áhrif þarna á vegna þess að afturvirk skattlagning sé óheimil samkvæmt stjórnarskrá landsins.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is