Þriðjudagur 30.03.2010 - 22:08 - Ummæli ()

Lady Gaga hefur ekki sofið í þrjá daga: Nýtur frægðarinnar í botn

Lady Gaga er svo hrikalega upptekin af frægð og frama að hún missir svefn á nóttunni og hefur ekki sofið í þrjá daga.

100303p2_gaga_b-gr_007.jpgÍ viðtali við breska OK segir poppdívan sérvitra að hún hafi átt margar andvökunætur frá því að frægðarsól hennar tók að skína en að hún vilji ekki sjá svefnlyf þar sem svo margar góðar hugmyndir geri vart við sig í svefnrofunum.

„Ég hef svo sterka ástríðu fyrir því sem ég er að gera að ég hef ekki sofið í þrjá daga. Ég ligg í rúminu og bið og anda. Ég er með hrikalega ofvirkan heila en myndi aldrei taka róandi lyf. Þetta gerir mig hálf geðveika en ég gæti ekki verið öðruvísi. Ég elska útkomuna,“ segir Gaga sem er greinilega létt ga-ga.

„Ef örlög mín eru að missa vitið vegna frægðarinnar þá er það bara þannig. En ástríðan er mér mikilvægari en allt annað. Frægðarsólin drepur ástríðuna hjá mörgum sem hún skín á en fyrir mér er frægðin eins og eldsneyti. Því meira sem aðdáendur mínir taka vel í það sem hef fram að færa, því meira langar mig til að gera.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is