Föstudagur 02.04.2010 - 11:18 - Ummæli ()

Mikil umferð á gosstöðvarnar í dag. Mikilvægt að virða tilmæli lögreglu

fjallstindur.pngHátt í fimm þúsund manns skoðuðu eldgosið á Fimmvörðuhálsi í gær, ýmist upp á jökli eða frá Básum í Þórsmörk. Búast má við svipuðum fjölda í dag, þó enn sé kalt og nokkuð hvasst. Frost er þar um um sex til átta stig, en vegna vindkælingar nemur frostið jafngildi um fimmtán til tuttugu stigum.

Litlar breytingar hafa orðið á eldgosinu og má enn sjá eldstöðvarnar tvær í fullu fjöri. Gönguleiðir frá Básum og Skógum eru opnar en umferð er bönnuð í eins kílómetra radíus frá gosstöðvunum.

Björgunarsveitarmenn þurftu að hjálpa nokkrum bílum sem lentu í vandræðum á Mýrdalsjölki og við Þórsmörk í nótt.  Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra sagði í tilkynningu í gærkvöld að búið væri að taka frá tvo hóla sem útsýnisstaði yfir báðar gosstöðvarnar. Svæðin séu talin örugg og fólki því beint þangað. Borið hafi hins vegar á því að bílum sé ekið beint upp á hólana sem hafi skapað hættu. Ökumenn eigi að leggja bílum sínum neðan við hólana til að ekki verði hætta á slysum.

Gæsla er á svæðinu allan sólarhringinn. Algert bannsvæði er í kílómetrafjarlægð frá gosstöðvunum og einnig vestanmegin við gosið. Heimilt er að fara út frá Þórsmörk uppá Morinsheiði en bannað er að fara upp á Bröttufönn og Heljarkamb.

Lögreglan brýnir það fyrir fólki að fara að fyrirmælum lögreglu og björgunarsveita sem standa vakt á svæðinu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is