Mánudagur 05.04.2010 - 19:33 - Ummæli ()

Gallup: Mikil óánægja kjósenda með Jóhönnu. Utanþingsráðherrar vinsælir

rikisstjorn_8mai09.jpgJóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra er óvinsælust allra ráðherra ríkisstjórnarinnar samkvæmt könnun Gallup sem Ríkisútvarpið greindi frá í kvöld. Rúmlega helmingur kjósenda kveðst óánægður með störf hennar. Utanþingsráðherrarnir, Ragna Árnadóttir og Gylfi Magnússon, njóta mests álits meðal kjósenda.

Könnunin sem RÚV greindi frá er síðan um miðjan mars en hefur ekki verið birt áður.

Fram kom að 65% kjósenda eru ánægð með störf Rögnu Árnadóttur og hefur álit á henni aukist um 16 prósentustig frá því í könnun síðast liðið haust. Tæpur helmingur, eða 49%, segist ánægður með störf Gylfa Magnússonar efnahags- og viðskiptaráðherra.

Í þriðja sæti á vinsældalistanum samkvæmt frétt RÚV er Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarráðherra; um 44% þjóðarinnar er ánægð með hennar störf. Ánægja með störf Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, hefur lítið breyst milli kannana en rúmt 41% segjast ánægð með hans störf.

Rúm 27% lýstu ánægju með störf forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, sem hafnar í fimmta sæti á listanum. Um 56% aðspurðra segjast óánægð með störf hennar. Af öllum ráðherrum ríkisstjórnarinnar eru flestir óánægðir með störf Jóhönnu. Á eftir Jóhönnu á listanum er Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, en tæpur fjórðungur segist ánægður með hennar störf.

Minnst ánægja er með störf Álfheiðar Ingadóttur, heilbrigðisráðherra, Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegsráðherra og Kristjáns L. Möller samgönguráðherra. Um og undir 14% segjast ánægð með þeirra störf og nýtur Kristján minnstra vinsælda þeirra þriggja. Þess ber þó að geta að um og yfir þriðjungur segist hvorki ánægður né óánægður með þeirra störf.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is