Sérstakur saksóknari: Ákvarðanir um fyrstu ákærur fyrir lok þessa mánaðar
Ólafur Þ. Hauksson, sérstakur saksóknari bankahrunsins, stefnir að því að ljúka rannsóknum á fyrstu málum embættisins fyrir lok þessa mánaðar. Þá verða teknar ákvarðanir um ákærur. Hann segir að málin séu komin misjafnlega langt, en segist ekki geta sagt til um hvaða mál séu komin lengst.
Frá þessu er greint á vefmiðlinum Vísi.
„Við stefnum að því að ljúka einhverjum málum í þessum mánuði en það er með öllum þeim fyrirvörum sem mögulegt er í því,“ erhaft eftir Ólafi. Hann segir að það sé nokkuð oft sem það komi fyrir að þegar saksóknarar séu í lokayfirferð máls að þá óski þeir eftir einhverjum viðbótartíma. En miðað við það sem fram eftir sé í rannsókn að þá sé stefnt að því að ljúka þeim í apríl.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is