Meðlimir Hells Angels vilja milljónir fyrir ólögmætar handtökur. Eitt slíkt mál unnist
Líkur eru taldar góðar á að íslenska ríkið þurfi að greiða nokkrum einstaklingum í vélhjólaklúbbnum Hells Angels Prospect, sem áður hét Fáfnir, allt að fjórum milljónum króna í bætur fyrir meintar ólöglegar handtökur. Einn meðlimur samtakanna hefur þegar unnið eitt slíkt mál og hlotið bætur fyrir.
Um er að ræða atvik um mitt ár 2007 þegar sérsveit ríkislögreglustjóra fór með valdi inn í höfuðstöðvar Fáfnis og voru tíu meðlimir handteknir. Segir frá því á Vísi að málið hafi verið dómtekið í morgun en aðalmeðferð verður að bíða fram á haust sökum anna héraðsdóms Reykjavíkur.
Fara allir einstaklingarnir fram á 600 þúsund króna bætur í þessu tilfelli en sá eini sem þegar hefur unnið sitt mál hlaut 150 þúsund krónur í bætur fyrir skömmu. Þykir málið allt byggt á fremur veikum grunni og því þykir ekki ólíklegt að ríkið þurfi að leggja út fyrir alls fjórum milljónum króna þegar allt kemur til alls.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is