Þriðjudagur 06.04.2010 - 16:20 - Ummæli ()

Tæplega 60 sagt upp í hópupp- sögnum í síðasta mánuði. Bótaþegum fækkar þó verulega

vinnumalastofnun-logo.jpgÞrjú fyrirtæki sögðu upp alls 57 starfsmönnum sínum nú fyrir síðustu mánaðarmót í hópuppsögnum en öll eru fyrirtæki þessi með starfsemi á höfuðborgarsvæðinu. Þeim fækkaði þó talsvert sem þáðu atvinnuleysisbætur milli mánaða. Nú fengu tæplega 15.800 einstaklingar greiddar bætur en sá fjöldi var tæplega 16.600 í febrúar. Munar þar um 800 manns.

Mikil leynd hvílir yfir upplýsingum um hópuppsagnir hjá Vinnumálastofnun og fást engar upplýsingar þaðan um þau fyrirtæki sem gripið hafa til þessa úrræðis frá bankahruni. Er því við borið að um viðkvæm mál sé að ræða. Fæst þó uppgefið að í þetta sinn sé um að ræða fyrirtæki í byggingariðnaði, verslun og fjármálastarfsemi.

Athygliverðast er hve mikil fækkun er á bótaþegum milli mánaða samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun. Fækkar þeim um 800 manns á einum mánuði og bótagreiðslur ríkisins lækka að sama skapi úr 2,3 milljörðum í 1,9 milljarð.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is