Þingmaður vill stórbæta aðstöðu skíðamanna á Akureyri. Lífeyrissjóðir komi þar að
Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, vill stórbæta aðstöðu skíðafólks í Hlíðarfjalli á Akureyri enn frekar og reisa þar þjónustumiðstöð á heimsmælikvarða. Segir hann tilefnið sívaxandi vinsældir fjallsins sem þjóðarleikvangs skíðafólks í landinu. Til þess verkefnis sé sjálfsagt að leita til lífeyrissjóða landsmanna hvað fjármögnun varðar.
Skrifar Sigmundur um málið á heimasíðu sinni en þar segir hann gríðarleg tækifæri í að gera enn betur en gert er við skíðafólk á Akureyri sem jafnframt er heimabær þingmannsins. Bendir Sigmundur á að ekki líði ár án þess að aðsóknarmet séu slegin í Hlíðarfjalli og slíkt sé uppi á teningnum nú eftir páskana þegar brekkur Hlíðarfjalls voru jafn pakkaðar af fólki og snjó. Nálgast fjöldi gesta á skíðasvæðið þennan veturinn um hundrað þúsund manns í heild.
Skrifar þingmaðurinn á vef sinn: „Og nú þarf að hugsa stórt: Hér er þjóðarleikvangur skíðafólks; landsins augljósasta tækifæri til að sækja fram í vetrarferðaþjónustu fyrir landsmenn alla og umheiminn. Byggja verður upp gestaaðstöðu á næstu misserum, alvöru þjónustumiðstöð af metnaði.“
Sigmundur fer ekki nánar í útfærslu þessara hugmynda á vef sínum. Ekki náðist í þingmanninn við vinnslu fréttarinnar til að fá nánari skýringar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is