DV: Skilanefnd Glitnis stefnir Jóni Ásgeiri, Pálma í Fons og Lárusi Welding. Vill 6 milljarða
Skilanefnd Glitnis höfðar sex milljarða króna skaðabótamál gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Pálma Haraldssyni sem voru meðal helstu eigenda bankans. Auk þess er Lárusi Welding, fyrrverandi forstjóra bankans, stefnt og þremur núverandi lykilstarfsmönnum Íslandsbanka.
Frá þessu er greint í DV í dag, fyrsta tölublaðinu sem kemur út eftir eigendaskipti á blaðinu. DV var stundum gagnrýnt fyrir að taka á málum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar með silkihönskum vegna náinna tengsla fyrrverandi eiganda blaðsins, Hreins Loftssonar, við útrásarvíkinginn og viðskiptaveldi hans.
Í DV segir að stefnurnar á hendur sexmenningunum séu að einhverju leyti unnar á grundvelli rannsóknar fjölþjóðlega fyrirtækisins Kroll sem mánuðum saman hafi starfað í þágu skilanefndar og slitastjórnar Glitnis. Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, hafi áður óskað þess að niðurstöður rannsóknar Kroll verði birtar opinberlega og hafi samið við fyrirtækið um að svo verði gert eigi síðar en í sumar.
Í frétt blaðsins segir að Kroll sérhæfi sig í athugunum á efnahagsbrotum og fjársvikamálum og reki skrifstofur í tugum borga um heim allan. Félagið þyki harðsnúið í störfum sínum og hafi um 30 ára skeið hjálpað fyrirtækjum, ríkisstjórnum og einstaklingum við að draga úr áhættu og upplýsa mál af ýmsum toga. Það fari yfir bókhald og önnur gögn sem tengist fjármálastarfsemi og safni hvers kyns sönnunargögnum, einnig þeim sem geymd séu í rafrænu formi.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is