Aukin sala áfengis á árinu miðað við sama tíma í fyrra. Páskar skekkja þó myndina
Samkvæmt sölutölum ÁTVR fyrstu þrjá mánuði ársins er sala áfengis í vínbúðum fyrirtækisins að aukast lítið eitt þrátt fyrir miklar auknar álögur ríkisins á áfengi um síðustu áramót. Samanburðurinn er þó ómarktækur þar sem páskasala er stór sölutími áfengis en páskarnir voru í apríl í fyrra en mars í ár.
Seldust liðinn mars 1.614 þúsund lítrar af áfengi sem er tæplega 20% meiri sala en í mars fyrir ári. Sé hins vegar sala páskavikunnar nú borin saman við sölu í páskavikunni 2009 þá voru seldir 505 þús. lítrar af áfengi í páskavikunni í ár sem er 3,5% minna en sambærilega viku í fyrra.
Áberandi er hve mjög dregur úr sölu á svokölluðum blönduðum drykkjum á þessu ári. Er sala á þeim rúmlega 30 prósentum minni nú en fyrstu þrjá mánuði ársins 2009. Einnig dregur verulega úr sölu á sterku áfengi eða um tæp 19 prósent. Á móti eykst sala rauð- og hvítvíns um tæp sjö prósent og rétt prósent í bjór.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is