Fimmtudagur 08.04.2010 - 15:33 - Ummæli ()

Lífeyrissjóðir draga lærdóm af hruninu. Strangari kröfur og betri hagsmunagæsla

peningar.jpgLífeyrissjóðir eiga að gera strangari kröfur til útgefenda verðbréfa, miðlara, kauphallar og eignastýringaraðila og gæta þannig hugsmuna sinn með virkari og fjölbreyttari hætti en verið hefur.

Þetta er gróflega niðurstaða nefndar sem Landssamtök lífeyrissjóða skipuðu í maí á síðasta ári til að fara yfir hvað stjórnar- og starfsmenn lífeyrissjóða landsins gætu lært af þeim fjárhagslegu áföllum sem dunið hafa yfir íslenskt þjóðfélag.

Leggur nefndin til breytingar á viðskiptaháttum á markaði, regluverki og starfsumhverfi lífeyrissjóðanna. Skal það gert með þrenns konar hætti:

• herða ákvæði skilmála verðbréfa og fjármálagerninga til að verja rétt og stöðu lífeyrissjóða þegar kaup eiga sér stað.
• knýja á um tafarlausa skráningu verðbréfa og aukna upplýsingamiðlun í kauphöll um útgefendur, umfang viðskipta og eðli þeirra.
• stuðla að bættum stjórnarháttum í fyrirtækjum og að standa vörð um hagsmuni smárra hluthafa.

Þykir ljóst að ýmislegt hafi upp á vantað til að lífeyrissjóðir gætu starfað eftir bestu getu. Þar á meðal var allri upplýsingagjöf um eignarhadl og fjármögnun stórra hluthafa ábótavant og illa hægt að átta sig á eignatengslum og mögulegu keðjuverkandi hruni.

Vill nefndin að við hverja skuldabréfaútgáfu verði skipaður fulltrúi kröfuhafa að erlendri fyrirmynd til að gæta hagsmuna þeirra og að í hlutafélagaskrá liggi alltaf ljóst fyrir hverjir séu stærstu hluthafar í félögum og hvernig þeir kunni að tengjast, ef samanlögð eign þessara hluthafa fer yfir 5 prósent. Þá mælist nefndin ennfremur til að stjórnarmenn og forstjórar láti meira til sín taka í umræðu og gagnrýni á opinberum vettvangi.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is