Fimmtudagur 08.04.2010 - 15:10 - Ummæli ()

Glitnismálið: Pálmi Haraldsson segist ekkert hafa hagnast persónulega

thumbnail_260×173.jpgPálmi Haraldsson, einn þeirra sem hefur verið stefnt af hálfu slitastjórnar Glitnis vegna þrots bankans, segir í yfirlýsingu að slitastjórnin fari með rangt mál gagnvart sér í stefnunni. Það sem þar komi fram varðandi að Pálmi hafi náð milljarði króna út úr bankanum í eigin vasa með blekkingum eigi sér enga stoð í raunveruleikanum.

Hafa þá allir þrír þeir sem stefnt er af hálfu slitastjórnarinnar tjáð sig um innihald stefnunnar. Vísa þeir Jón Ásgeir Jóhannesson, Pálmi Haraldsson og fyrrum bankastjórinn Lárus Welding meira eða minna öllu á bug sem þar kemur fram.

Yfirlýsing Pálma í heild:

Í stefnu slitastjórnar Glitnis banka hf. á hendur mér og fleirum kemur meðal annars fram að ég hafi náð einum milljarði út úr Glitni banka hf. fyrir mig persónulega, nánast með blekkingum.

Hið rétta er að lánið var veitt Fons hf, fór til greiðslu skuldbindinga Fons hf við Glitni banka hf. og bætti þar með tryggingastöðu bankans. Ég hagnaðist ekki persónulega á þessum viðskiptum, heldur var einn milljarður notaður til að greiða inn á lán Fons hf. við Kaupthing Bank í Luxembourg. Hefði slitastjórn Glitnis banka hf skoðað bókhald Fons hf, eins og gera verður kröfu um, hefði sést, svart á hvítu að títtnefndur milljarður var færður á reikning Fons hf en ekki minn persónulega reikning.

Vert er að taka fram í þessu sambandi, að bústjóri Fons hf hefur undir höndum allt bókhald félagsins. Þar hefði slitastjórn Glitnis banka hf. getað fengið réttar upplýsingar áður en stefnan var gefin út. Þeim hefði því verið í lófa lagið að fá öll gögn en ekki bara sum áður en þeir hófust handa. Þegar slíkum vinnubrögðum er beitt, getur umræðan aldrei orðið sannleikanum samkvæmt.

Mér finnst alvarlegt að slitastjórn Glitnis banka hf. byggi á slíkum málatilbúnaði.

Þá vil ég benda á að þrátt fyrir að stefnan komi frá slitastjórn Glitnis banka hf. er hún með öllu tilefnislaus. Fram á það verður sýnt í dómsal.

Að öðru leyti mun ég ekki tjá mig frekar um þetta mál í fjölmiðlum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is