Enginn íslensku bankanna gat hætt á að leyfa Baugi að fara í þrot sökum skuldbindinga
Enginn íslensku bankanna fyrir hrunið gat hætt á að flaggskip Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Baugur, færi í þrot samkvæmt mati Rannsóknarnefndar Alþingis.
Þegar heildarútlán bankanna eru skoðuð til Baugur Group og tengdra félaga sést að þau sköpuðu umtalsverða áhættu í öllum bönkunum. Jafnvel þótt lágmarkseignarhald sé skilgreint sem 50 prósent, sem að mati nefndarinnar var allt of þröngt skilgreint, eru útlán til Baugs og tengdra félaga yfir 10 prósent af eiginfjárgrunni allra bankanna.
Með lækkandi lágmarkseignarhaldi fjölgar í hópnum og útlánin til hópsins aukast. Við 40 prósent lágmarkseignarhald eru allir bankarnir með heildarútlán yfir 30 prósent af eiginfjárgrunni sínum og er ljóst að Baugur Group og tengd félög mynduðu svo stóra áhættu hjá bönkunum að enginn þeirra gat hætt á að Baugur eða fyrirtæki þess færu í þrot. Skuldbindingar Baugs voru því orðnar of stórar fyrir íslenska bankakerfið.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is