Skýrsla rannsóknarnefndarinnar afhend Alþingi og komin á netið
Það var tilfinningaþrungin stund í Alþingishúsinu þegar rannsóknarnefnd Alþingis vegna bankahrunsins afhenti skýrslu sína formlega nú klukkan tíu.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, veitti fyrsta eintaki skýrslunnar viðtöku, en viðstaddir voru einnig aðrir þingforsetar, formenn þingflokka eða staðgenglar þeirra.
Páll Hreinsson, formaður rannsóknarnefndarinnar, ávarpaði þingið fyrir hönd nefndarinnar. Aðrir nefndarmenn voru einnig viðstaddir, þau Sigríður Benediktsdóttir og Tryggvi Gunnarsson, ásamt þriggja manna nefnd sem hafði umsjón með siðferðiskafla skýrlsunnar, þau Vilhjálmur Árnason, Salvör Nordal og Kristín Ástgeirsdóttir.
Nú klukkan hálf ellefu hefst fréttamannafundur í Iðnó með nefndunum tveimur.
Skýrslu rannsóknarnefndarinnar má sjá hér.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is