Miðvikudagur 14.04.2010 - 14:12 - Ummæli ()

Gosið í Gígjökli: Brýr á þjóðvegi enn í hættu. Vinnu við Landeyjahöfn hætt

flof.jpgEngir jakar hafa sést í hlaupi því er staðið hefur úr Gígjökli síðan fyrir hádegi. Þykir það benda til þess að gosið undir jöklinum sé ekki eins stórt og menn fyrst hugðu. Vatn hefur flætt langleiðina að nokkrum bæjum undir Eyjafjöllum en ekkert er vitað um hugsanlegar skemmdir. Vinnu við gerð Landeyjahafnar hefur verið hætt í öryggisskyni.

Þjóðvegur númer 1 hefur verið rofinn á þremur stöðum til að koma í veg fyrir að brýr eyðileggist. Það hefur ekki komið í veg fyrir að vatn er komið upp að brúarpallinum við Markafljótsbrú. Hún er þó ekki talin í mikilli hættu. Lokað er fyrir alla umferð á svæðinu.

Hafa allir starfsmenn við Landeyjahöfn verið fluttir brott. Engar skemmdir hafa orðið á þeim nýju mannvirkjum sem þar eru í byggingu svo vitað sé til en talið er líklegt að flóðvarnargarðar ofarlega í Markarfljóti láti undan fyrr en síðar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is