Lok, lok og læs. Lofthelgi flestra landa í norðurhluta Evrópu lokuð fram á laugardag
Gosið í Eyjafjallajökli er að hafa ægilegar afleiðingar fyrir nágrannalönd Evrópu og hafa flugmálayfirvöld í velflestum löndum norðantil í álfunni gefið til kynna að lofthelgi þeirra verði lokuð vel fram á morgundaginn.
Mun Eurocontrol, flugmálastofnun Evrópu, gefa út nýja tilkynningu vegna málsins um miðjan dag en veðurspár gera áfram ráð fyrur austlægum vindum sem þýðir öskufall áfram í norðurhluta álfunnar.
Vísindamenn meta það svo að öskufall úr gígnum í Eyjafjallajökli hafi aðeins minnkað frá því í gær en ekki nægilega til að leyfa flug að nýju. Það hefur líka talsvert með vindáttir að gera en spár gera ráð fyrir óbreyttum vindum að mestu frameftir degi.
Lofthelgi þessara landa er alfarið lokuð:
Danmörk
Belgía
Holland
Finnland
Litháen
Lofthelgi þessara er að hluta til lokuð
Bretland
Írland
Svíþjóð
Noregur
Frakkland
Pólland
Þýskaland
Austurríki
Tékkland
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is