Föstudagur 16.04.2010 - 10:16 - Ummæli ()

Sautján þúsund flugferðum frestað í dag sökum eldgossins. Stórkostleg vandræði víða

all-flights-cancelled.jpgÚtlitið er ekki bjart fyrir ferðalanga og flugrekendur í Evrópu í dag en gosmökkurinn frá Eyjafjallajökli setur áfram stórt strik í ferðaáætlanir milljóna manna annan daginn í röð. Er það sérstaklega slæmt í dag enda föstudagur og fjölmargir sem þá fara í helgarferðir til heitari staða sunnar í álfunni. Gert er ráð fyrir að af 28 þúsund áætluðum flugferðum í dag fari aðeins 11 þúsund í loftið.

Verst er staðan í Bretlandi þar sem nánast allt flug liggur enn niðri og mun gera það til klukkan 1 í nótt samkvæmt síðustu fregnum. Í Noregi er staðan svo slæm að þyrluflugi hefur ennfremur verið frestað um óákveðinn tíma en það er býsna alvarlegt enda þjónusta þyrlur alla olíu- og gasborpalla landsins um allt.

Í kjölfar gossins hafa hlutabréf í flugfélögum snarlækkað á einni nóttu meðan bréf í ferju- og lestarfélögum hafa tekið stökk upp á við.

Hér heima liggur hluti flugs niðri en Keflavíkurflugvöllur er opinn þrátt fyrir allt. Ætla Icelandair og Iceland Express að sjá til hverju fram vindur fram á daginn.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is