Mánudagur 19.04.2010 - 14:09 - Ummæli ()

Oprah er rangt feðruð en svarar ekki gömlum manni sem óskar þess að hitta hana áður en hann deyr

Spjallþáttadrottningin Oprah Winfrey er meðal þeirra fjölmörgu einstaklinga í heiminum sem hafa verið rangt feðraðir.
thumb27.jpgÁrið 2003 hóf hún leitina að raunverulegum föður sínum og vitanlega hafa fjölmargir gefið sig fram enda ekkert slor að vera pabbi Opruh.

Nú er það 84 ára gamall fyrrum hermaður úr seinni heimstyrjöld sem hefur gefið sig fram í annað sinn og biður Opruh af öllu hjarta að íhuga faðernispróf.

Þetta er hinsta ósk gamla mannsins en hann þráir að eiga spjall við Opruh sem faðir hennar, áður en hann leggst til hinstu hvílu.

Noah Robinson Senior kom fyrst fram í sviðsljósið árið 2003, skömmu eftir að Oprah gat þess að hún hefði alist upp í þeirri trú að annar maður en sá rétti væri raunverulegur faðir hennar.

„Ég skrifaði henni að ef hún óskaði þess þá væri ég tilbúinn til að fara í DNA próf,“ sagði sá gamli í viðtali við New York Post en Oprah hefur enn ekki svarað honum.

Noah Robinson hefur mesta ævina verið bóndi í Missisippi en núna dvelur hann á heimili fyrir aldraða. Hann segist síðast hafa hitt Opruh þegar hún var lítil stelpa.

„Ég er pabbi hennar og ég hef ekki séð hana síðan hún var krakki, pínulítil.“

Upplýsingafulltrúi Opruh segir hana ekki tilbúna til að svara Robinson. Oprah ólst upp í þeirri trú að kærasti mömmu hennar, Vernon Winfrey, væri pabbi sinn og hún lítur enn á hann sem slíkan þó að hún sé að skimast um eftir blóðföður sínum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is