Þriðjudagur 20.04.2010 - 11:09 - Ummæli ()

Forsetinn á BBC: Gosið í Eyjafjallajökli bara létt æfing fyrir Kötlugos. Ferðaþjónustan ósátt

olafurragnarbbc.jpgÓlafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hvetur ríkisstjórnir Evrópulanda til að búa sig undir Kötlugos. Gosið í Eyjafjallajökli og afleiðingar þess er, að hans mati, aðeins bara lítil æfing af því sem er í vændum ef Katla lætur á sér kræla.

Þetta sagði forsetinn í viðtali við BBC sjónvarpið í gærkvöld. Í viðtalinu benti hann á hve miklar afleiðingar geta orðið af náttúröflunum á Íslandi.

„Það sem við höfum séð undanfarna daga er aðeins byrjunin á því sem gæti endurtekið sig með skelfilegum afleiðingum langt fram eftir 21. öldinni. Sagan segir okkur að eldfjöllin hér muni gjósa reglulega og Katla mjög fljótlega,“ sagði Ólafur Ragnar.

„Kötlugos verður miklu stærra, þannig að þetta er í raun léttvæg æfing af því sem gæti gerst. Þetta er ekki spurning hvort, heldur hvenær Katla gýs. Við höfum beðið eftir Kötlugosi, erum undir það búin með margvíslegum almannavörnum, svo það er kominn tími til að ríkisstjórnir í Evrópu, ásamt flugmálayfirvöldum um allan heim, vinni viðbragðsáætlun fyrir Kötlugos.“

Ferðaþjónustan ósátt

Samtök ferðaþjónustunnar eru ósátt við þessi ummæli forseta Íslands og telja skaðlegt að hann lýsi Íslandi með þessum hætti. Þegar hafi margir ferðamenn afboðað komu sína og ummæli sem þessi geri ástandið bara verra.

„Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál,“ segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar við Vísi.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is