Sunnudagur 25.04.2010 - 18:34
- Ummæli
()
27 ára bið á enda: Valur Íslandsmeistari kvenna í handbolta
Valur tryggði sér í kvöld Íslandsmeistaratitil kvenna í handbolta með því að vinna Fram í æsispennandi leik, 26-23.
Þetta var fjórði úrslitaleikur liðanna og sá þriðji sem Valur sigrar. Leikurinn var æsispennandi og lauk venjulegum leiktíma með jafntefli, 22-22. Þá var framlengt og Valur tryggði sér þriggja marka sigur.
Þetta er fyrsti Íslandsmeistaratitill Vals í handbolta kvenna í 27 ár. Karen Knútsdóttir var markahæst Framara í leiknum, skoraði 10 mörk, en Hrafnhildur Skúladóttir skoraði mest Valsstúlkna, eða 12 mörk.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is