Sunnudagur 25.04.2010 - 11:29 - Ummæli ()

Davíð Oddsson: Rannsóknarefni hvort Glitnismenn settu á svið mikið sjónarspil fyrir fall bankans

david-oddsson.jpgDavíð Oddson, fyrrum seðlabankastjóri, telur ekki ólíklegt að forsvarsmenn Glitnis hafi sett á svið mikið sjónarspil þegar þeir leituðu aðstoðar hjá bankanum og stjórnvöldum skömmu fyrir yfirtöku ríkisins á bankanum. Segir bankastjórinn fyrrverandi að fullt tilefni sé til rannsóknar á því hvort reynt hafi verið að leika á bankann og ríkið.

Þetta kemur fram í einu svari bankastjórans fyrrverandi við spurningum rannsóknarnefndar Alþingis. Þar fullyrðir Davíð að Glitnishelgin fræga þegar sá banki var á einni nóttu tekinn yfir af ríkinu hafi ekki verið sá snjóbolti sem komið hafi flóðinu af stað.

Segir Davíð svo frá að Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Glitnis, hafi óskað eftir fundi símleiðis þann 25. september en aðeins með Davíð einum en ekki bankastjórninni allri. Þegar fram hafi komið að fundarefnið var hugsanlegt greiðslufall bankans hafi Davíð þótt óþægilegt að sitja slíkan fund einn síns liðs og kallað til bankastjórn alla.

„En þegar óskir forráðamanna Glitnis skýrðust kom fram að þreifingarnar beindust ekki að láni í íslenskri mynt heldur var hugmyndin að fá drjúgan hluta gjaldeyrisforða þjóðarinnar lánaðan, og tekin var fram að sú aðgerð gæti hugsanlega hjálpað bankanum út árið og framhald væri allt fullkominni óvissu háð. En bankinn sagðist ef til kæmi geta boðið fram bestu veð sín til tryggingar skuldinni, veð sem ekki væri hægt að draga í efa að myndu halda þótt hrikti í öðru.“

Við þessar aðstæður þótti beiðni bankans of viðamikil til annars en kalla saman ríkisstjórnina einnig vegna málsins og var það gert.

„Þegar það ferli var í gangi kom allt í einu tilkynning frá hinum nauðstadda banka að hin góðu áreiðanlegu veð, sem nefnd, höfðu verið, lægju reyndar ekki á lausu, eins og allir æðstu menn hans hefðu þó gefið til kynna. Og nú voru nefnd til sögunnar veð, sem reyndir menn á því sviði í bankanum sáu í sviphendingu að voru miklu mun lakari enda þekktu þeir til sumra þeirra, sem áður hafði verið úrskurðað að uppfylltu ekki skilyrði bankans. Það er rannsóknarefni hvort bankinn hafi viljandi leikið þennan leik, til að reyna fyrst að tryggja jákvæð svör í krafti hinna góðu veða, og reyna svo að halda þeirri niðurstöðu eftir að þau væru úr sögunni á meðan klukkan gekk á bankann og stjórnvöld. Það er næsta ótrúverðugt að stjórnendur bankans hafi ekki vitað um stöðu þessara veða sem þeir töldu afbragð annarra.“

Eftirmálann þekkja flestir. Eftir næturfund stjórnvalda og seðlabanka var ákveðið að þjóðnýta Glitni banka.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is