Mánudagur 26.04.2010 - 07:17 - Ummæli ()

Nýr valkostur borgarbúa í borgarstjórnarkosningum í vor. Reykjavíkurframboðið býður fram

radhus_reykjavikur_2_mid.jpgNýr valkostur verður í boði í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar sem fram fara í lok maí fyrir utan Besta flokk Jóns Gnarr. Mun hópurinn kalla sig Reykjavíkurframboðið og samanstendur af fólki víðs vegar úr þjóðfélaginu. Verður stofnað formlega til framboðsins á morgun.

Hópurinn hyggst bjóða nýjan valkost fyrir höfuðborgarbúa og telja ekki vanþörf á að bæta við flóruna enda segir í tilkynningu að greinilegt sé að fjórflokkarnir sem flestu ráða séu ekki kostur sem margir geti hugsað sér á tímum sem þessum. Í þeim hóp sé vonlaust að vinna almennilega að framgangi ýmissa brýnna verkefna og er þar helst talið til sögunnar flugvöllurinn í Vatnsmýri sem miklar deilur hafa staðið um árabil.

Sem fyrr segir fer stofnfundur framboðsins fram í Iðnó á morgun.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is