Mánudagur 26.04.2010 - 07:43 - Ummæli ()

Viðskiptafléttur Karls Werners- sonar kenndar í viðskiptafræði við Háskóla Íslands

wernerssynir.jpgFléttur þær í viðskiptalífinu sem Karl Wernersson, kenndur við Milestone, varð frægur fyrir um tíma og þótti meðal þeirra allra snjöllustu í viðskiptum voru efnisatriði í prófum hjá viðskiptafræðinemum við Háskóla Íslands og því líklegt talið að viðskiptaveldi þeirra og aðferðir hafi verið kennsluefni í skólanum um tíma.

DV segir frá þessu en vitnað er í próf vorið 2008 þar sem spurt var sérstaklega út í fléttur Karls og fyrirtækis hans enda talið að af þeim mætti læra. Var þá eðlilega ekki vitað að Milestone átti í miklu basli og gjörningum ýmis konar sem rannsóknarnefnd Alþingis telur vafasama í hæsta lagi.

Umrædd spurning kom upp á prófi í námskeiðinu Stjórnun og skipulagsheildir og hljómaði svo: „Stjórnarformaður Milestone Karl Wernersson hefur útvíkkað starfsemina og farið inn á ný athafnasvið og stuðlað að fjölbreytingu (fjölþættingu) í rekstri Milestone. Nefndu dæmi um annarsvegar tengda og hinsvegar ótengda fjölbreytingu (fjölþættingu) sem Milestone hefur farið í síðan það var stofnað?“

Milestone og mörg viðskipta Karls eru nú til rannsóknar hjá yfirvöldum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is