Framkvæmdastjórn Samfylkingar: Harmar aðför mótmælenda að heimili Steinunnar
„Við teljum ýmsa staði koma til greina vilji fólk mótmæla en heimili fólks er ekki þar á meðal, „segir Margrét S. Björnsdóttir, formaður Framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar, en stjórnin átelur þá aðför sem hópur einstaklinga gerði tvö kvöld í röð að heimili Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, þingmanns flokksins.
Margrét bendir á að eðlilegra hefði verið að mótmæla fyrir framan vinnustað Steinunnar á Alþingi og þá séu ótaldir þeir fjölmiðlar þar sem fólk geti komið sjónarmiðum sínum og mótmælum á framfæri. Ekki sé eðlilegt að gera aðför að friðhelgi einkalífsins eins og gert hafi verið í þessum tilfellum.
Í tilkynningu vegna málsins kemur þó líka fram að stjórnin harmi það mjög að fjárfrek prófkjör hafi tíðkast áður fyrr í flokknum og bent er á að mjög hafi verið þrengdar reglum um slíkt í framtíðinni, bæði af Alþingi en einnig af hálfu flokksins.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
