Geiri í Goldfinger hvetur til mótmæla gegn Steinunni Valdísi. Kallar hana heilaga belju
Á meðal þeirra sem hvetja til mótmæla við heimili Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, er Ásgeir Davíðsson, betur þekktur sem Geiri í Goldfinger.
Skemmst er að minnast að Steinunn Valdís hefur lengi barist gegn nektardansstöðum, fyrst í Reykjavíkurborg og svo með lagasetningu á Alþingi nýverið þegar nektardans var með öllu bannaður hér á landi.
Geiri hefur farið mikinn gegn Steinunni á facebook síðu sinni og hvatt þar til þess að fólk safnist saman við heimili þingkonunnar og krefjist þess að hún segi af sér þingmennsku. Meðal annars kallar Geiri Steinunni „litla þjófinn“ og svo „heilaga belju“ sem eigi að setja í fangelsi.
Ein af mörgum harðorðum stöðuuppfærslum (status) Geira á facebook undanfarna daga er svohljóðandi:
„Ef þú kyssir Steinunni Valdísi skaltu telja tennurnar á eftir.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is