Fimmtudagur 29.04.2010 - 09:14
- Ummæli
()
Fékk rausnarlegan starfsloka- samning þrátt fyrir stórtap hjá SpKef
Fyrrum sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Keflavíkur, Geirmundur Kristinsson, gekk frá borði um mitt ár í fyrra með starfslokasamning upp á 54 milljónir króna þrátt fyrir að tölur fyrir síðasta heila starfsár sjóðsins undir hans stjórn árið 2008 sýndu nítján milljarða króna tap sjóðsins.
Viðskiptablaðið gerir þetta að umtalsefni.
Ekki aðeins naut Guðmundur rausnarlegrar kveðjugjafar heldur leysti ennfremur út allan séreignasparnað sinn.
Ársreikningur SpKef fyrir árið 2009 hefur ekki verið birtur opinberlega en ljóst er að áframhaldandi tap var á rekstri hans. SpKef var síðan tekinn yfir af íslenska ríkinu í síðustu viku.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is