Kallað eftir sömu reglum um kattahald og hundahald í borginni. Kettir borginni dýrir
Umsjónarmaður meindýravarna Reykjavíkurborgar telur einsýnt að setja verði sömu reglur um kattahald í borginni og gilda um hundahald þar sem lítið hald sé í núgildandi samþykktum um kattahald.
Óþrifnaður katta er meginástæða þess hve borgaryfirvöld þurfa að leggja árlega í mikinn kostnað og vinnu til að halda sandkössum hreinum fyrir börnin.
Bakteríur, spólormar og sníkjudýr ýmis konar lifa góðu lífi í sandkössum borgarinnar en þangað komast lífverurnar fyrir tilstuðlan katta sem mikið er af í borginni.
Er þessi hætta ástæðan fyrir því að borgaryfirvöld hafa nú fækkað sandkössum töluvert en með því er verið að sporna við smithættu sem getur orðið börnum að heilsutjóni.
Miklar umræður hafa skapast um þann gjörning borgarinnar en minna farið fyrir umfjöllun um orsakavaldinn sjálfan; kettina. Þó ekki gildi jafn strangar reglur um kattahald í borginni og hundahald gilda þó reglur um merkingar, lyfjagjöf og eftirlit eigenda þeirra. Að mati þeirra sem til þekkja eru þær reglur undantekningarlítið þverbrotnar.
„Mín tilfinning er að svona fimm prósent allra katta í borginni séu merktir en það er ein þeirra krafna sem eru fyrir leyfi til kattahalds,“ segir Guðmundur Björnsson, rekstrarstjóri Meindýravarna borgarinnar, sem átelur borgina fyrir að herða ekki reglurnar. „Þær eiga að gilda sömu reglur um kattahald og hundahald enda eru vonlaust að framfylgja samþykktum um kettina. Samkvæmt þeim ber eigendum að fylgjast með þeim og bera ábyrgð á öllu tjóni sem þeir valda en það er vitaskuld vonlaust þegar kettirnir ganga lausir.“
Ekki er við villiketti að sakast að mati Guðmundar því tala þeirra sé hverfandi í borginni. „Það er misjafnt hvað við fáum margar kvartanir vegna katta árlega en í fyrra komu 60 kvartanir og við tókum þá 107 ketti. Undantekningarlítið eru þetta heimiliskettir enda villikettir fáséðir.“
Árlega færa borgaryfirvöld öll um 500 ketti til Kattholts en þangað er farið með alla ketti hvort sem um óskilaketti er að ræða eða hvort kvartanir hafa borist yfir þeim.
Rósa Magnúsdóttir hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur segir ekkert hafa verið rætt þar á bæ um frekari reglur um kattahald í borginni og telur slíka ákvörðun meira af pólitískum toga en varða heilbrigði minna.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
