Stjórn lífeyrissjóðsins Gildis lánaði Glitni tæpa fjóra milljarða. Afskrifað að fullu
Samkvæmt upplýsingum úr ársskýrslu lífeyrissjóðsins Gildis lánaði sjóðurinn Glitni banka tæplega fjögurra milljarða króna víkjandi lán á árinu 2008 og hefur umrætt lán verið afskrifað að fullu úr bókum Gildis.
Fyrirspurnir fundarmanna vegna málsins skiluðu litlum svörum annað en ákvörðunin hefði verið stjórnar og starfsmanna í sameiningu.
Frá þessu greinir á Vísi en upphæðin sem hér um ræðir er hærri en sem nemur heildarupphæð allra iðgjalda lífeyrissjóðsins árið 2009. Námu heildariðgjöld sjóðsfélaga þá 3,5 milljörðum króna en lánið til Glitnis hljóðaði upp á 3,7 milljarða.
Þrátt fyrir mikinn urg á fundinum í gærkvöldi var kolfelld tillaga um að stjórn og framkvæmdastjóri segðu af sér hið snarasta eins og Eyjan greindi frá í gær. Formaður stjórnar, Vilhjálmur Egilsson, sagði eftir fundinn að um afar ómaklega aðför að stjórn væri að ræða og talaði um bót og betrun stjórnar og starfsmanna á næstu misserum og árum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
