Þorvaldur Gylfason: Skýrslan fyrsta skrefið. Vill meina stjórnmála- mönnum að njóta eftirlauna
Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis er aðeins fyrsta skrefið á langri leið að uppgjöri vegna bankahrunsins að mati Þorvalds Gylfasonar prófessors. Telur hann enn mörgu ósvarað um aðdraganda bankahrunsins sem nefndin hafi ekki farið yfir.
Fór Þorvaldur mikinn í þættinum Silfri Egils í dag og gerði þar að sérstöku umtalsefni að menn reyni að loka alfarið fyrir greiðslur eftirlauna til stjórnmálamanna og annarra greiðsla sem slíkt fólk eigi rétt á eftir að hafa komið landi og þjóð á vonarvöl.
Vill Þorvaldur rannsaka mun meira en orðið er og þá meðal annars aðdraganda kvótakerfisins. Þykir honum fullt tilefni til að fara í saumana á hvaða stjórnmálamenn eða flokkar hafi greitt fyrir því og í kjölfarið grætt á því.
Ennfremur vill hann láta kanna hugsanleg umboðssvik í aðdraganda hrunsins en á því máli hafi rannsóknarnefnd Alþingis alls ekki tekið. Icesave málið sé eitt slíkt mál sem falli undir hugtakið umboðssvik.
Þorvaldur segir engan vafa samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar að lögbrot hafi verið framin og skýr tilefni séu til dómsmála. Hann segir þó viðbrögð stjórnmálamanna við skýrslunni afar lömuð og stjórnvöld hafi ekki tekið afstöðu með fólkinu í landinu heldur þvert á móti.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
