Tugir fyrrverandi stjórnenda bankanna fá bakreikning frá skattinum
Rúmlega 30 fyrrverandi stjórnendur Glitnis og Kaupþings hafa fengið bakreikning frá skattayfirvöldum vegna söluréttasamninga. Krefjast skattayfirvöld að samningarnir verði skattlagðir sem launatekjur en ekki fjármagnstekjur. Dæmi eru um að menn hafi hagnast um hálfan milljarð á samningunum. Frá þessu var sagt í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.
Skattyfirvöld hafa um nokkurt skeið skoðað söluréttarsamninga sem starfsmönnum gömlu bankanna bauðst. Vilja þau meina að slíka samninga beri að skattleggja sem launatekjur en ekki fjármagnstekjur.
Söluréttarsamningar virkuðu þannig að starfsmönnum gafst færi á að kaupa hlutabréf með söluréttartryggingu fyrirtækisins. Ef bréfin hækkuðu í verði gátu þeir valið að eiga bréfin eða selja þau en ef þau lækkuðu gátu þeir gengið frá samningnum sér að kostnaðarlausu. Stjórnendurnir greiddu 10% fjármagnstekjuskatt þegar bréfin voru seld en greiddu ekkert vegna söluréttarins. Þessu vill Ríkisskattstjóri breyta og hefur þegar unnið málið fyrir yfirskattanefnd og héraðsdómi.
Samkvæmt heimildum fréttastofunnar hafa nú rúmlega 30 fyrrverandi stjórnendur Glitnis og Kaupþings fengið endurákvörðun opinberra gjalda frá skattyfirvöldum vegna samninganna. Meðal þeirra eru fyrrverandi forstjóri og stjórnarformaður Kaupþings, Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður Einarsson og fyrrverandi forstjóri Glitnis, Bjarni Ármannsson. Málin munu þó vera misjafnlega langt á veg komin.
Hæstu fjárhæðirnar voru hjá Kaupþingi en dæmi eru um að menn hafi hagnast um allt að fimm hundruð milljónir króna. Í heildina nemur tekjuskattsstofninn nokkrum milljörðum króna.
Enn er unnið að því að greina söluréttarsamninga í öðrum fyrirtækjum og má búast við að stjórnendur fleiri fyrirtækja fái bakreikning frá skattinum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is