Mánudagur 03.05.2010 - 07:05 - Ummæli ()

Tryggingasvikum hefur fjölgað eftir bankahrun. Svik kosta tryggingafélög fjóra milljarða á ári

Tryggingasvikum og tilraunum til svika hefur fjölgað eftir bankahrunið, að mati Guðmundar Arnar Gunnarssonar, forstjóra vátryggingafélagsins VÍS. Niðurstöður könnunar, sem Capacent Gallup gerði fyrir Samtök fjármálafyrirtækja, sýna að fólk telur tryggingasvik léttvægari en fjárdrátt og önnur fjármálabrot. Ungt fólk virðist bíræfnara en áður og þekkir helmingur aldurshópsins 16-24 ára til tryggingasvika. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Guðmundur bendir á að í gegnum tíðina hafi verið upplýst um tryggingasvik, svo sem sviðsetta árekstra, til að fá bætur greiddar frá tryggingafélögum. Á meðal annarra brota sem algengari séu nú en fyrir hrun séu tilkynningar um innbrot í heimahús og bíla og íkveikjur. Guðmundur segir að þótt innbrotafaraldur hafi gengið yfir á síðasta ári útiloki hann ekki að einhverjar tilkynningar um innbrot séu ekki sannleikanum samkvæmar. Það geti skekkt upplýsingar um tíðni þeirra.

Páll Sigurðsson, sérfræðingur hjá Sjóvá, segir sviðsetta árekstra og þjófnaði raunverulegt vandamál hér á landi. Páll, sem vinnur við rannsóknir á bótasvikum, rifjar upp að í fyrra hafi maður tilkynnt um þjófnað á tveimur motocross-hjólum og fengið tvær milljónir í bætur. Síðar kom í ljós, í kjölfar ábendingar, að hjólin voru enn í vörslu mannsins. Hann hlaut dóm fyrir svikin og endurgreiddi bæturnar. Páll tekur fram að svona tilfelli séu undantekningar, langflestir séu strangheiðarlegir en greiði fyrir háttsemi hinna óheiðarlegu með iðgjöldum sínum.

Guðmundur Örn telur skýringuna á því hversu margt ungt fólk viti af tryggingasvikum liggja í því að ungt fólk líti tryggingafélag öðrum augum en þeir eldri. „Sumum finnst einfaldlega sem þeir eigi rétt á að fá greitt til baka frá tryggingafélögum. Það er hugarfar sem við finnum fyrir í dag,“ segir hann. Undir þetta tekur Páll. Hann segir ungt fólk frekar þann hóp sem líti á tryggingasvik sem minni háttar brot.

Bótagreiðslur vátryggingafélaga námu þrjátíu milljörðum króna árið 2008. Talið er að þar af nemi bótasvik allt að 4,5 milljörðum króna.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is