Föstudagur 07.05.2010 - 12:19
- Ummæli
()
Hagspá Seðlabankans: Störfum mun áfram fækka fram á mitt næsta ár
Með þeim fyrirvara að spár Seðlabanka Íslands eru oftar en ekki rangar gerir bankinn nú ráð fyrir að störfum hér á landi haldi áfram að fækka allt fram á mitt næsta ár. Byggir bankinn þá spá sína á að störfum hefur fækkað mun hraðar og örar en gert var ráð fyrir í kjölfar kreppunnar. Telur bankinn því atvinnuástandið hér ekki lagast fyrr en seinni hluta árs 2011.
Að sama skapi hefur landflótti orðið mun meiri en spár bankans gerðu ráð fyrir samkvæmt efnahagsriti bankans sem kom út í vikunni. Gerði bankinn ráð fyrir sjö prósenta lakari vinnuaflsnotkun eins og það er orðað árið 2009 miðað við fyrra ár en þegar upp var staðið reyndist hún lakari um tíu prósent. Höfðu þannig tapast 28 þúsund ársverk frá hápunkti góðærisins
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
