Laugardagur 08.05.2010 - 16:13
- Ummæli
()
Haukar Íslandsmeistarar í handbolta karla. Unnu Valsmenn í oddaleik
Haukar urðu í dag Íslandsmeistarar í handbolta karla þriðja árið í röð. Þeir sigruðu Valsmenn í oddaleik með 25 mörkum gegn 20.
Þetta var fimmti úrslitaleikur liðanna og því var ljóst að sigurvegarinn í dag yrði Íslandsmeistari. Leikurinn fór fram að Ásvöllum í Hafnarfirði og var íþróttahöllin troðfull.
Valsmenn höfðu forystuna framan af í leiknum, en Haukar unnu forskotið upp og náðu eins marks forskoti fyrir leikhlé, 10-9.
Um miðjan síðari hálfleik dró svo í sundur með liðunum og unnu Haukar sannfærandi sigur.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is