Sunnudagur 09.05.2010 - 10:33 - Ummæli ()

Unnið myrkranna milli hjá sérstökum saksóknara. Yfirheyrslur halda áfram

Fyrrverandi stjórnarformaður og bankastjóri Kaupþings

Yfirheyrslur vegna rannsóknar sérstaks saksóknara á málefnum Kaupþings munu halda áfram í dag, en stíft er unnið að rannsókn málsins hjá embættinu um helgina.

Segir Vísir frá því að til standi að yfirheyra fjölda manns á meðan Hreiðar Már Sigurðsson og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi bankastjórar, sitja í gæsluvarðhaldi. Nokkrir af þeim sem talið er brýnt að yfirheyra eru staddir erlendis, en fréttastofa hefur ekki upplýsingar um hvenær þeir eru væntanlegir til landsins.

Rannsókn sérstaks saksóknara á meintum lögbrotum í Kaupþingi er umfangsmikil. Grunur leikur á markaðsmisnotkun, skjalafalsi, auðgunarbroti og broti á hlutafélagalögum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is