Beðið eftir Hæstarétti. Hjördís, Jón Steinar og Ólafur Börkur ákvarða gæsluvarðhaldið
Hæstiréttur tekur líklega í dag fyrir kröfu sérstaks saksóknara um gæsluvarðhald yfir fyrrverandi stjórnendum Kaupþings, þeim Hreiðari Má Sigurðssyni og Magnúsi Guðmundssyni, en þeir kærðu úrskurð Héraðsdóms á föstudag til Hæstaréttar.
Öllum gögnum var skilað til réttarins á föstudag og líður þá yfirleitt sólarhringur þar til rétturinn kveður upp úrskurð sinn. Það gæti þó dregist þar til á morgun.
Samkvæmt upplýsingum frá Hæstarétti munu þrír dómarar kveða upp úrskurðinn, þau Hjördís Hákonardóttir, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.
Hreiðar Már var úrskurðaður í 12 daga gæsluvarðhald og Magnús í viku. Sérstakur saksóknari stefnir að því að yfirheyra aðra hlutaðeigandi á meðan þeir sitja í varðhaldi.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is