Mánudagur 10.05.2010 - 20:53 - Ummæli ()

Hæstiréttur klofnaði en staðfesti gæsluvarðhald Kaupþingsstjóra. Jón Steinar skilaði séráliti

Hæstiréttur

Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhald yfir þeim Hreiðari Má Sigurðssyni og Magnúsi Guðmundssyni, fyrrverandi stjórnendum Kaupþings, en þeir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í héraðsdómi fyrir helgi.

Hæstiréttur klofanði í úrskurði sínum, tveir dómarar staðfestu gæsluvarðhaldið en sá þriðji skilaði séráliti. Hörður Felix Harðarson, lögmaður Hreiðars Más, staðfesti þetta við Eyjuna í kvöld. Hann sagði að úrskurður Hæstaréttar væri mikil vonbrigði, enda væri hann byggður á afar hæpnum forsendum, að hans mati.

Samkvæmt heimildum Eyjunnar var það Jón Steinar Gunnlaugsson sem skilaði séráliti, en þau Hjördís Hákonardóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson staðfestu gæsluvarðhalsúrskurðinn.

Hreiðar Már mun því sitja í gæsluvarðhaldi í tólf daga og Magnús í níu daga.

Einsog Eyjan greindi frá í dag hefur embætti sérstaks saksóknara yfirheyrt sex af æðstu stjórnendum gamla Kaupþings um helgina. Enn er beðið eftir að Sigurður Einarsson verði við beiðni um að koma til landsins í yfirheyrslur.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is