Aðildarumsókn Íslendinga við Evrópusambandið mögulega tekin fyrir strax í næsta mánuði
Svo getur farið að leiðtogar Evrópusambandsins taki aðilarumsókn Íslands í sambandið fyrir strax í næsta mánuði en fundur leiðtoga fer fram um miðjan júnímánuð. Aðeins þrír mánuðir eru síðan framkvæmdastjórn ESB mælti með aðildarviðræðum.
Mbl.is greinir frá þessu og vísar til ummæla Miguel Angel Moratinos, utanríkisráðherra Spánar en Spánverjar fara með forsæti í framkvæmdastjórn sambandsins nú um stundir.
Samþykki leiðtogar álfunnar umsókna Íslands gæti formlegar samningaviðræður hafist fljótlega í kjölfarið og lét Moratinos hafa eftir sér að fátt stæði í vegi fyrir því að hans mati.
Maros Sefcovic, sem sér um málefni stofnana ESB segir að hann finni fyrir traustum stuðningi við umsókn Íslands. Öll aðildarríkin 27 verða að samþykkja það að hefja viðræður við Ísland.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
