Þriðjudagur 11.05.2010 - 14:00 - Ummæli ()

Heidi Klum (36): „Hann kyssir æðislega og skiptir um bleyjur“

Þýska fyrirsætan Heidi Klum er hæstánægð með eiginmann sinn, söngvarann Seal og segist vilja halda sér til fyrir hann um ókomin ár.


Hún segist svo heppin í ástum að stundum þurfi hún einfaldlega að klípa sjálfa sig í handlegginn til að vera viss um að hana sé ekki að dreyma.

„Ég elska hann ekki bara af augljósu ástæðunni (hóst-kynþokkinn), heldur er hann líka einn besti, blíðasti og kærleiksfyllsti maður sem ég hef kynnst,“ sagði Heidi í viðtali við tímaritið Redbook.

„Hann er sexý í mínum huga af því hann er hugrakkur og hræðist ekki að sýna tilfinningar sínar. Hann er súper sexý, kyssir vel og svo getur sungið fyrir framan 25.000 manns eina mínútuna og skipt um bleyju á litlu dóttur okkar þá næstu.“

Spurð að því hvenær hann höfðaði mest til hennar sagði Heidi einfaldlega „Hmmm… þegar við erum í svefnherberginu.“

Það var ekki flókið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is