Hættulegast að búa á Suður- nesjum. Mestur fjöldi líkamsárása miðað við mannfjölda
Miðað við íbúafjölda er fólki langhættast við að slasast vegna líkamsárása á Suðurnesjunum en þetta kemur fram í afbrotatölfræði lögreglunnar. Undir flokkinn líkamsárásir falla bæði meiriháttar og minniháttar líkamsmeiðingar auk morða en samkvæmt tölunum urðu 49 slík afbrot á Suðurnesjum síðastliðin þrjú ár.
Vísir tók saman þá staði á landinu þar sem líkamsárásir eru algengastar og koma þéttbýlisstaðir á Suðurnesjunum verst út á landsvísu. Sé mið tekið af síðustu þremur árum verða þar 49 líkamsárásir á hverju tíu þúsund íbúa sem er áberandi hæsta talan en næst kemur Akureyri þar sem 42 slíkar árásir verða á hverja tíu þúsund íbúa. Aðeins 33 slíkar líkamsárásir verða í höfuðborginni á sama tíma miðað við sama fjölda íbúa.
Kemur ennfremur fram í tölum lögreglu að flest fíkniefnamál koma upp á Suðurnesjum en sú staðreynd litast þó af því að fíkniefni sem gerð eru upptæk í Leifsstöð teljast með í þeim útreikningi.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
