Þriðjudagur 11.05.2010 - 18:00 - Ummæli ()

Karlarnir í Kiss vilja Lady Gaga sem fimmta meðlim sveitarinnar

Glysrokkararnir í Kiss vilja stórstjörnuna Lady Gaga með í hljómsveitina en hún yrði þá fimmti meðlimurinn.

Kapparnir segja hana kvenútgáfuna af Kiss og því um fátt annað að ræða en að fá hana með í hljómsveitina.

„Hún er ekki Lady Gaga, hún er Lady Kiss,“ sagði Gene Simmons (60) í viðtali við breska blaðið Daily Star.

„Ég elska stemmninguna, kjaftinn á henni og sjónarspilið. Jafn áhugaverður tónlistarmaður hefur ekki sést í skemmtanaiðnaðinum síðan við komum fyrst fram. Hún er kvenútgáfan af okkur,“ sagði hann og bætti við að eitt af því fyrsta sem Kiss lærðu á sínum ferli hefði verið að aðdáendurinn væru það sem skipti mestu máli:

„Hún skilur þetta líka. Hún skilur að þegar aðdáendur hafa keypt miðann sinn, þá verða þeir stjórinn og við erum bara að vinna fyrir þá. Lady Gaga skilur líka að aðdáendurnir eiga það besta skilið af því þeir borga launin þín.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is