Þriðjudagur 11.05.2010 - 07:15 - Ummæli ()

Sjálfstæðisflokkurinn heldur hreinum meirihluta sínum í Reykjanesbæ

Bæjarstjórinn Árni Sigfússon getur sáttur við unað

Samkvæmt skoðanakönnun sem Fréttablaðið og Stöð 2 stóðu fyrir heldur Sjálfstæðisflokkurinn hreinum meirihluta sínum í Reykjanesbæ. Þar mælist flokkurinn með 51,2 prósenta stuðning þeirra sem afstöðu tóku. Er þetta þó nokkuð tap frá síðustu sveitarstjórnarkosningum þar sem flokkurinn ávann sér stuðning 56, 3 prósent bæjarbúa.

Samkvæmt könnuninni fengi Sjálfstæðisflokkur nú sex fulltrúa í bæjarstjórn af ellefu alls og tapar einum manni. Hástökkvarinn í Reykjanesbæ er flokkur Vinstri grænna sem tvöfalda sitt fylgi frá síðustu kosningum og fá stuðning 12,1 prósenta þeirra sem afstöðu höfðu í könnuninni. Fær sá flokkurin einn mann kjörinn miðað við þetta fylgi en hefur engann í dag.

Samfylkingin er næststærsti flokkurinn í bænum með rúmlega helming af fylgi Sjálfstæðisflokksins. Samfylkingin nýtur stuðnings 26,4 prósenta og fengi þrjá bæjarfulltrúa. Framsóknarflokkurinn nýtur stuðnings 10,3 prósenta samkvæmt könnuninni, og næði einum manni inn.

Samkvæmt þessu yrðu því ekki miklar breytingar á fjölda bæjarfulltrúa. Samfylking og Framsóknarflokkur fengju samanlagt sama fjölda og flokkarnir eru með sameiginlega í dag, en Vinstri græn bæta við sig manni á kostnað Sjálfstæðisflokks.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is