Boðað til mótmæla við Heilsuverndarstöðina. Vilja stöðina aftur í almenningseigu
Hópur fólks hyggst mótmæla ráðagerðum um breytingum á Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í dag klukkan 14 en það vekur mörgum ugg þær hugmyndir að breyti skuli húsnæðinu í hótelbyggingu með tilheyrandi niðurrifi og breytingum.
Er það Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi, sem boðar til mótmælanna en hann telur fráleitt að breyta eigi húsinu í enn eitt hótelið. Telur hann brýna þörf að vernda húsnæðið og færa það aftur í eigu almennings.
Í tilkynningu um málið segir Ólafur áformin séu út í hött og í hróplegri mótsögn við menningarsögulegt gildi hússins. Það hafi verið að frumkvæði Framsóknarflokksins árið 1989 sem áform um að leggja starfsemina niður hafi hafist og þau áform hafi með tíð og tíma hlotið aukinn stuðning í borgarstjórn.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
