Viðskipti Miðvikudagur 26.05.2010 - 10:03 - Ummæli ()

Steingrímur fagnar viðsnú- ningi Bjarna Benedikts- sonar. Vill harðari reglur

Bjarni Benediktsson

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, kvaddi sér hljóðs á Alþingi í gær við umræðu um nýtt frumvarp um breytingar á lögum um banka og fjármálafyrirtæki en sagði frumvarpið ganga of skammt. Herða þyrfti reglur frekar.

Þessu fagnar Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður Vinstri grænna, en Morgunblaðið greinir frá.

Sagði fjármálaráðherrann það fagnaðarefni að formaður Sjálfstæðisflokksins væri að leggja til eitthvað uppbyggilegt og talaði ráðherrann um umpólun í þessu tilfelli.

Tók Steingrímur undir með Bjarna að sjálfsagt væri að skoða enn harðari reglur en nú liggja fyrir í nýju frumvarpi en þó væri með þessu gengið töluvert lengra varðandi lög og reglur fjármálafyrirtækja en áður hefði þekkst. Talaði Steingrímur þar sérstaklega að herða þyrfti ákvæði um aðskilnað fjárfestingarbanka og innlánastarfsemi


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is