Listamaður boðar mikið sjónarspil í október. Ætlar að lýsa upp Snæfellsjökul
Þýskur listamaður, Gert Hof, hyggst senda heiminum skilaboð um alvarleika hnattrænnar hlýnunar í október þegar hann hyggst baða Snæfellsjökul ljósum. Fær hann íslenska listamenn í lið með sér og mun Bergljót Arnalds semja tónlist við verkið.
Fréttablaðið greinir frá þessum hugmyndum sem eru nokkuð á veg komnar en Hof þessi hefur tekið ástfóstri við jökulinn eftir að hafa skoðað hann. Er hann nokkuð þekktur erlendis fyrir ljósaverk sín og hefur meðal annars lýst upp Akropolis í Aþenu.
„Þetta verða skilaboð til allra hér á jörðu um að við verðum að takast á við hnattræna hlýnun. Við þurfum rétta fólkið og við höfum rétta fólkið hér. Í öðru lagi þurfum við réttu pólitísku kringumstæðurnar. Fólkið vill þetta. Í þriðja lagi er þetta ótrúlega fallegur staður. Í fjórða lagi þarf verkefnið að hafa réttu skilaboðin og þau eru þetta stóra umhverfisvandamál allrar jarðarinnar.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
